Nú er komið að því!!! Ég á nefnilega afmæli í dag þannig að þá
reiknast það þannig að ég er orðn 24 ára gömul ég er búin að vera
skíthrædd að vita það að þetta færi að nálgast common ég er bara 24
ára ekki 74, hvers vegna er ég að stressa mig á þessu hef ekki
hugmynd kannski er það það að ég búin að eignast margt á 6 árum 2
börn,mann,bíl og hús get því miður ekki átt kött en við eigum 2
gullfiska "Gunnar og Felix", og ég á bara eftir að mennta mig
þannig núna þarf ég að fara ákveða það hvað ég ætla að vera meira
en húsmóðir,mamma,unnusta,dýraeigandi og eiga góðan vinahóp sem er
mjög góður slatti og vitið eitt ég held að þetta nægji mér alveg,
og ég get ekki verið meira heppnari með það sem ég á.

núna er ég búin að tala um það sem skiptir kannski engu máli
fyrir þig en skiptir máli fyrir mig þannig takið þið það
til sín sem vilja
Í kvöld ætlum ég og Auður að halda uppá afmælið okkar þannig það
á eftir að vera geggjað gaman í kvöld við Auður skemmtun okkur
alltaf vel saman og í góðra vina hópi er það meira gaman. Magga og
Leó ætla að kikka á mig í dag og er stór fugl búinn að
hvísla því að mér að þau ætla koma með pakka “mér finnst svo gaman
að fá pakka "hlakka til"
Heyrðu já frábær hittingur hjá árgangnum síðustu helgi það er
alveg frábært að sjá hvað við getum skemmt okkur vel saman og
Trausti þú ert lélegur í keilu þótt þú hafir tekið eina fellu með
vinstri það er ekkert ég var bara miklu betri en þú viðukenndu það
bara og Haukur Þór takk fyrir öll staupin. Vonandi verður þetta
endurtekið sem fyrst ég skemmti mér konunglega og veit ég að flest
allir eða bara allir gerðu að líka…
Hafið þið það sem allra best um helgina....
Arna
Rut
Smá fréttir til Maríönnu svona í lokin.
Hæhæ Maja frænka Þóra Sóley biður kærlega að heilsa þér og bíður
hún spennt að fá frá þér prinsessu kjólinn. Þú veist hvað ég á við,
hún er algjör gella núna er málið að fá gloss á hverjum degi og
vera með varasalva í vasanum og fara útí búð og kaupa alveg
sjálf!!Hún er búin að fá míkið hrós á leikskólanum fyrir að vera
hjálpsöm og þess háttar og var að búa til sína fyrstu 3 mín
teiknimynd í tölvunni sem er alveg frábær hún heitir stelpan í
sólskininu fórum einmitt í gær að horfa á hana ásamt því að skoða
það sem hún er búin að vera gera annað upp á síðkastið, henni gekk
vel í 5 ára skoðunni hún var ekkert með stórann haus eða
neitt:
haha..nei hún gerði allt rétt og kunni allt það
sem fyrir henni var haft,ég er mjög stolt og ánægð með
hana. Svo Vigfús hann er bara búinn að vera svona meira veikur í
nóvember mánuði en þeim síðasta hann er alveg í fullri pústmeðferð
þessa daga þolir minna en venjulega og sefur lítið sem ekkert á
nóttinni við Ingvar erum búin að vera skiptast á að sofa á gólfinu
hjá honum.Og það sem er fórum við einmitt að skoða hjá honum líka í
gær á leikskólanum en öll svona stór hópaverkefni sem deildin hans
er að gera er hann búinn að missa af þvi það hittir alltaf á þá
daga sem hann hefur verið heima lasinn eða slappur en það kemur
seinna meir hann er farinn að spjalla rosalega míkið en
setningarnar eru stundum ekki skiljanlegar nema eitt og eitt orð,
núna segir hann í hvert sem við tölum um þig MAJA VINNA, MAJA BAÐ
OG MAJA BORÐA þannig hann er ekkert búinn að gleyma þér. Við Ingvar
erum bara fín héldum uppá daginn um daginn eins og þú
veist fórum fínt út að borða og enduðum í bænum á rosa djammi
um nóttina held að við höfum komið heim sex það var voða gaman
heyrðu sæta ætla hætta núna við biðjum að heilsa öllum í
Usa.
Kveðja Arna Rut ,Ingvar Már, Þóra Sóley,Vigfús Bjarki,Gunnar og
Felix.